Um okkur

Sagan okkar

Af hverju við byggjum framleiðsluaðstoðina fyrir nútíma fiskeldi.

EquaFish varð til út frá einfaldri athugun: fiskeldi drukknar í gögnum og sveltur eftir innsýn.

Árið 2024 komum við inn í greinina sem forvitnir nemendur. Við ræddum við fjölda starfsmanna í eldinu og heyrðum sömu sögurnar aftur og aftur: hrúgur af framleiðslugögnum dreifðar á ólík kerfi án nokkurrar leiðar til að sjá heildarmyndina. Mikilvægar ákvarðanir teknar á tilfinningunni af því að ómögulegt var að grafa upp réttu upplýsingarnar í tæka tíð. Og viðkvæmnin sem fylgir því að öll þekkingin liggi hjá einum eða tveimur lykilstarfsmönnum.

Það hlaut að vera til betri leið.

Við fórum í stöðvarnar, sátum morgunfundi og hlustuðum, ekki á það sem fólk sagðist þurfa, heldur á vandamálin sem það glímdi raunverulega við á hverjum degi. Við sáum pirringinn við að hoppa milli kerfa, tímann sem handvirk skýrslugerð stelur, og áhyggjurnar af því hvað gerist þegar lykilfólk er fjarverandi.

Útkoman er EquaFish, framleiðsluaðstoðin sem setur líffræðileg og rekstrarleg gögn í samhengi, svo fólkið sem hugsar um fiskinn geti fundið og nýtt raunverulegt framleiðslupotential stöðvarinnar.

Við gerum þetta á þann hátt að dagurinn verður einfaldari og ákvarðanirnar öruggari.

  • EquaFish hjá viðskiptavini
  • EquaFish á faraldsfæti
  • Á staðnum
  • Við kvíarbrúnina
  • Kynning með teyminu

Teymið

Fólkið á bak við EquaFish